Trump sakaður um skattaundanskot

Frambjóðandinn Donald Trump.
Frambjóðandinn Donald Trump. AFP

Donald Trump, væntanlegur forsetaframbjóðandi repúblikana, skrifaði undir fjárfestingasamning sem íslenska fjárfestingafélagið FL Group og alþjóðlega fasteignafélagið Bayrock Group gerðu sín á milli árið 2007. Markmiðið með fjárfestingunni, sem var síðar breytt í lán, er sagt vera að komast hjá skattgreiðslum í Bandaríkjunum.

Breska blaðið Daily Telegraph birti í dag ítarlega fréttaskýringu um viðskipti félaganna tveggja. Um var að ræða fimmtíu milljóna dala, sem jafngildir um 6,3 milljörðum króna, samning sem félögin gerðu sín á milli en í samningnum var gerð krafa um samþykki Donalds Trump.

Sem kunnugt er fjárfesti FL Group í fjórum fasteignaverkefnum í Bandaríkjunum árið 2007, þar á meðal í byggingu Trump Soho-turnsins. Það var gert í samstarfi við Bayrock Group.

Fréttaskýring Daily Telegraph byggist á gögnum sem fjölmiðillinn hefur undir höndum og varða viðskiptin. Í einu skjali kemur meðal annars fram að Trump hafi staðfest fjárfestingu FL Group í Bayrock í aprílmánuði 2007. Fáeinum vikum síðar var fjárfestingunni hins vegar breytt í lán.

Það hafi verið gert til þess að komast hjá milljóna dala skattgreiðslum í Bandaríkjunum. FL Group hefði þurft að greiða 40% skatt af fjárfestingunni, samkvæmt bandarískum skattalögum, en þar sem henni var breytt í lán þurfti félagið ekki að greiða neinn skatt.

Donald Trump samþykkti þessi viðskipti, eins og gögn Daily Telegraph sýna, með undirskrift sinni. Hann átti hlut í hótelverkefnunum, þar á meðal 15% hlut í hótelinu í Soho á Manhattan í New York.

FL Group fjárfesti í fjórum fasteignaverkefnum í Bandaríkjunum árið 2007.
FL Group fjárfesti í fjórum fasteignaverkefnum í Bandaríkjunum árið 2007. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Alan Garten, lögmaður hans, þvertekur þó fyrir það að Trump hafi komið nálægt viðskiptunum. Undirskrift hans staðfesti aðeins þátttöku hans sem lítils hluthafa í verkefnunum. „Hann var ekki að samþykkja neitt.“

Bayrock hefur jafnframt vísað ásökununum á bug og sagt þær tilhæfulausar. Bandarísk skattayfirvöld hefðu á sínum tíma farið yfir viðskiptin og ekki séð neitt athugavert við þau.

Fasteignaverkefnin sem um ræðir voru eftirtalin:

Trump Soho – Fimm stjörnu hót­el í Soho-hverf­inu á Man­hatt­an í New York í sam­starfi við Don­ald Trump og Sap­ir Org­an­izati­on.

Trump Lau­der­dale – Fimm stjörnu hót­el á strönd Fort Lau­der­dale í sam­starfi við Don­ald Trump.

Whitest­one New York – Þróun þrettán ekru landsvæðis í Whitest­one, Qu­eens. Bayrock myndi í fram­hald­inu byggja fjölda lúx­usíbúða á svæðinu.

Ca­mel­back – Fimm stjörnu hót­el í Phoen­ix.

Í til­kynn­ingu frá FL Group sagði að áætlað væri að verk­efn­un­um yrði lokið inn­an þriggja ára. Fjár­fest­ing­in yrði fjár­mögnuð með eig­in fé og láns­fé.

Í kaup­hall­ar­til­kynn­ingu sem FL Group sendi frá sér árið 2007 var haft eft­ir Hann­esi Smára­syni, þáver­andi for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, að sam­starfið við Bayrock félli vel að stefnu FL. Þá stefnu sagði hann meðal ann­ars miðast við leit að spenn­andi og ögr­andi verk­efn­um: „Fast­eigna­markaður­inn er spenn­andi vett­vang­ur, þar sem mik­il sam­keppni rík­ir en hann býður jafn­framt upp á mörg og marg­vís­leg tæki­færi. Við hlökk­um til sam­starfs­ins við þetta virta fyr­ir­tæki, bæði á Banda­ríkja­markaði og alþjóðleg­um mörkuðum,“ sagði Hann­es.

Kristján Kristjáns­son, sem þá var upp­lýs­inga­full­trúi FL Group, sagði í sam­tali við Viðskipta­blaðið 23. maí 2007 að Bayrock hefði verið aðaldrif­kraft­ur­inn í aðdrag­anda þess að fyr­ir­tæk­in tvö hófu sam­starf. Um­fjöll­un ís­lenskra fjöl­miðla um sam­starf FL Group og Bayrock var ekki mik­il eða áber­andi á sínum tíma. 

FL Group dró sig úr verkefnunum árið 2008, sem og flestum fasteignaverkefnum sínum erlendis.

Frétt The Independent

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK