WOW fær þrjár nýjar vélar til viðbótar

Skúli Mogensen, forstjóri WOW.
Skúli Mogensen, forstjóri WOW. Rax / Ragnar Axelsson

WOW air hefur skrifað undir samning við bandarísku flugvélaleiguna Air Lease Corporation (ALC) sem er ein stærsta flugvélaleiga heims en fyrirtækið hefur í dag 269 þotur í leiguflota sínum sem eru leigðar til yfir 101 flugfélags um allan heim.

WOW air mun fá þrjár glænýjar farþegaþotur til viðbótar í flota sinn á næstu misserum. Pöntunin hljóðar alls upp á fimm þotur en tvær af þessum þotum eru Airbus A320neo og Airbus A321neo.

Önnur þeirra verður afhent á fyrsta ársfjórðungi ársins 2017 og hin eftir áramót 2018. Viðhengið „NEO“ stendur fyrir „New Engine Option“ sem þýðir ný tegund hreyfla sem lækkar eldsneytisnotkun um 20% miðað við núverandi tækni. Airbus NEO er nýjasta viðbótin við Airbus A320 fjölskylduna en vélarnar eru þægilegri, langdrægari og hljóðlátari en fyrri gerðir.

Sparneytnari vélar bjóða upp á lægra verð

„Við erum afskaplega ánægð að leigja þessar fimm nýju Airbus A321 og A320 til viðskiptavinar okkar, WOW air. Við hlökkum til þess að eiga langtímasamband við flugfélagið og hjálpa þeim að vaxa og dafna með einn nýjasta flugflota í heimi,“ er haft eftir Grant Levy, framkvæmdastjóra Air Lease Corporation (ALC), í tilkynningu.

„Þessar nýju Airbus „NEO“-vélar eru sniðnar að okkar leiðarkerfi og þar sem þær eru bæði langdrægari og sparneytnari munum við geta boðið upp á nýja áfangastaði ásamt því að halda áfram að lækka verðið enn frekar,“ er þá haft eftir Skúla Mogensen forstjóra og stofnanda WOW air.

Hinar þrjár þoturnar eru einnig glænýjar Airbus A321-vélar en ein þeirra, TF-GMA, var afhent núna í vikunni en TF-GPA mun afhendast í júlí eins og flugfélagið tilkynnti í síðustu viku. Næsta nýja Airbus A321-vél verður afhent í haust.

Frétt mbl.is: WOW fær tvær vélar beint úr kassanum

Meðalaldur flugflota WOW air er 2,5 ár.
Meðalaldur flugflota WOW air er 2,5 ár. Ljósmynd/WOW
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK