Kristinn nýr formaður SÍK

Kristinn Þórðarson, framleiðandi hjá Truenorth, er nýr formaður SÍK.
Kristinn Þórðarson, framleiðandi hjá Truenorth, er nýr formaður SÍK.

Aðalfundur SÍK, Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda, var haldinn fimmtudaginn 26. apríl. Á fundinum var kosinn nýr formaður Kristinn Þórðarson, framleiðandi hjá Truenorth. Kristinn tekur við af Hilmari Sigurðssyni, framkvæmdastjóra GunHill, sem hefur gegnt starfi formanns í fjögur ár.

Í tilkynningu segir að kvikmyndaiðnaðurinn á Íslandi hafi átt mikilli velgengni að fagna undanfarin ár og að stjórn SÍK fagni því að mennta- og menningarmálaráðuneytið hafi fundið leið til að deila út fjármagni sem lagt hafi verið til hliðar á fjárlögum frá árinu 2012 þegar ákveðið var að leggja virðisaukaskatt á miðasölu kvikmynda og koma til móts við íslenska kvikmyndagerð með sérstökum miðastyrkjum.

Um er að ræða 105 milljónir króna sem bíða þess að skiptast á framleiðendur íslenskra kvikmynda. Lög þess efnis voru samþykkt í mars síðastliðnum og var reglugerð um framkvæmdina samþykkt sama dag og aðalfundur SÍK var haldinn.

Fagna fyrirhugaðri hækkun á endurgreiðslu

Þá telur stjórn SÍK það mikið fagnaðarefni að fyrir liggi frumvarp um hækkun endurgreiðsluhlutfalls í kvikmyndaiðnaði úr 20% í 25%. „Ef að líkum lætur verða þau lög samþykkt innan skamms enda eru endurgreiðslur lykilatriði í þeim löndum sem sækjast eftir því að laða til sín erlenda kvikmyndaframleiðendur,“ segir í tilkynningu.

Eftirfarandi ályktun SÍK var samþykkt á aðalfundinum:

„Aðalfundur SÍK – Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda hvetur mennta- og menningarmálaráðherra til að ljúka gerð nýs samkomulags um stefnumörkun fyrir íslenska kvikmyndagerð og íslenska kvikmyndamenningu til næstu fimm ára.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK