Útboðið jákvætt fyrir lánshæfi Íslands

Útboðinu er ætlað að losa um snjóhengjuna svokölluðu.
Útboðinu er ætlað að losa um snjóhengjuna svokölluðu. mbl.is/Árni Sæberg

Matsfyrirtækið Moody´s gaf í dag út stutt álit um fyrirhugað útboð Seðlabanka Íslands á aflandskrónum. Í álitinu kemur fram það mat að fyrirhugað útboð sé jákvætt fyrir lánshæfi Íslands.

Moody's segir útboðið jákvætt að því leyti að það gefur fjárfestum, sem eiga fé bundið í svokölluðum aflandskrónum, tækifæri til útgöngu óski þeir þess. Það er enn fremur mat fyrirtækisins að útboðið gæti orðið til þess að létta á þrýstingi sem myndast hefur á innlendar eignir vegna gjaldeyrishafta og megi meðal annars merkja í mikilli styrkingu krónunnar á innlendum gjaldeyrismarkaði á síðustu tveimur árum.

Sérfræðingar Moody´s telja tímasetningu útboðsins skynsamlega þar sem stjórnvöld biðu með að halda slíkt útboð þar til gjaldeyrisforði þjóðarinnar var orðinn nægilega stór til að taka mætti á aflandskrónuvandanum, en að forðinn dygði jafnframt fyrir mögulegri erlendri fjármagnsþörf hagkerfisins.

Hér má lesa álit Moody's í heild.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK