Hafa selt hlut sinn í Austur

Miklar deilur hafa staðið yfir um skemmtistaðinn Austur.
Miklar deilur hafa staðið yfir um skemmtistaðinn Austur. mbl.is/Golli

Kamr­an Kei­van­lou og Gholam­hossein Mohammad Shirazi, eig­end­ur Al­facom ehf., hafa selt 50% hlut félagsins í skemmtistaðnum Austur.

Þetta staðfestir Kamran í samtali við mbl.is. Hluturinn var seldur fyrir nokkrum mánuðum til utanaðkomandi fjárfestis. Kaupverðið er trúnaðarmál en Kamran segir að hluturinn hafi verið seldur fyrir gott og sanngjarnt verð. Segist hann vera ánægður og feginn því að hafa dregið sig út úr rekstrinum.

Félagið keypti helmingshlut í skemmtistaðnum árið 2013.

Deil­ur hafa staðið á milli eig­enda Aust­ur undanfarin ár og kærur gengið á víxl. Þeir Ásgeir Kolbeinsson og Styrmir Þór Bragason eiga enn hinn helmingshlutinn í skemmtistaðnum.

mbl.is greindi frá því í janúar síðastliðnum að þeir Kamr­an og Gholam­hossein hefðu í hyggju að selja 50% hlut Alfacom ehf. Voru þeir þá komnir með gott boð frá líklegum kaupanda. 

Frétt mbl.is: Hyggjast selja hlut sinn í Austur

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK