Björgólfur: Efnahagslegt sjálfsmorð

Björgólfur Thor Björgólfsson.
Björgólfur Thor Björgólfsson.

Björgólfur Thor Björgólfsson lýsir yfir sorgardegi í pósti sem hann sendi samstarfsmönnum vegna ákvörðunar Breta um að yfirgefa Evrópusambandið. Hann telur þetta vera efnahagslegt sjálfsmorð. (e. economical Hara-Kiri).

Í pósti sem Björgólfur sendi í morgun segir hann ákvörðun bresku þjóðarinnar byggða á fölskum tilfinningum um stolt og barnalegum hugmyndum um alþjóðavæðingu.

Eitt það sorglegasta við málið sé að eldri kynslóðin hafi kosið með útgöngu á meðan þeir yngri hafi kosið með framtíð innan Evrópusambandsins. Þannig hafi kynslóðin sem er á förum á næstu fimmtán til tuttugu árum að vissu leyti rænt þá yngri af framtíðinni sem hún hefði kosið. 

Áhrifanna muni ekki síður gæta í öðrum aðildarríkjum Evrópusambandsins þar sem raddir öfgahópa séu að verða háværari. Þetta sé akkúrat á sama tíma og þörf sé á hinu gagnstæða sökum fjölmargra vandamála sem steðja að Evrópusambandinu.

Björgólfur endar póstinn á að segjast vera í sjokki, eða „Am gutted right now“.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK