Stærsta ferðaskrifstofa heims er sérhæfir sig í ferðum fyrir lesbíur ætlar bjóða upp á reisu með skemmtiferðaskipi í kringum Ísland næsta sumar. Um þrjú hundruð sæti voru í boði og seldust þau upp á örskömmum tíma.
Í samtali við Gay Iceland, segist Judy Dlugacz, stofnandi ferðaskrifstofunnar Oliviu, hafa fundið fyrir miklum áhuga á Íslandi um þessar mundir. Þessi áhugi hafi síðan verið staðfestur þegar uppselt varð í ferðina skömmu eftir að hún var tilkynnt. Nefnir hún þó að afbókunarhlutfallið sé yfirleitt í kringum fimmtán prósent og gætu áhugasamir því ennþá átt möguleika.
Siglingin hefst í Reykjavík hinn 28. júlí 2017 og verður farið suðurleiðina í kringum landið á átta dögum. Ferðinni lýkur síðan aftur í Reykjavík.
Ferðaskrifstofan Olivia var stofnuð árið 1990 og sérhæfir sig í ferðum fyrir lesbíur. Að sögn Dlugacz er karlmönnum þó ekki meinaður aðgangur að ferðunum heldur eru þær bara sérstaklega hannaðar fyrir konur og er áhugi karlmanna á þeim því almennt lítill. Ferðaskrifstofan einblíni á ferðir fyrir lesbíur þar sem mun fleiri aðilar bjóði upp á sambærilegar ferðir fyrir homma. Skortur sé því á ferðum sem þessum.
Rétt er að taka fram að ferðin er ekki einungis fyrir lesbíur heldur eru allar konur velkomnar.
Hér má finna nánari upplýsingar um ferðina.