Tulipop safnar 250 milljónum

(f.v.)Signý Kolbeinsdóttir, Helga Árnadóttir, Svana Gunnarsdóttir og Dóra Björg Marinósdóttir
(f.v.)Signý Kolbeinsdóttir, Helga Árnadóttir, Svana Gunnarsdóttir og Dóra Björg Marinósdóttir Mynd/Tulipop

Íslenska hönnunarfyrirtækið Tulipop hefur gert samning við sjóðinn Frumtak og núverandi hluthafa, Þorberg ehf., sem er félag í eigu Dóru Bjargar Marinósdóttur, um að leggja fyrirtækinu til tæplega 250 milljónir króna í nýtt hlutafé.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að hlutafjáraukningin muni styðja við frekari vöxt fyrirtækisins, bæði vöruþróun og hraðari sókn á erlenda markaði, en félagið hefur til dagsins í dag selt vörur sínar til 120 verslana í 14 löndum. Nýverið keypti bandaríski leikfangaframleiðandann Toynami réttinn að framleiðslu á Tulipop leikföngum sem munu koma á markað síðar á þessu ári. Samhliða er á dagskrá að gefa út barnabækur erlendis, gera teiknimyndir og þróa Tulipop leiki.

Tulipop hannar og framleiðir breiða línu af gjafavörum fyrir börn á öllum aldri og hefur hlotið alþjóðleg hönnunarverðlaun, meðal annars bresku Smallish Design Awards á síðasta ári. Auk þess hafa verið gefnir út leikir fyrir snjalltæki og barnabók.

„Frá því að við stofnuðum Tulipop fyrir sex árum hefur markmið okkar verið að gera ævintýraheim Tulipop heimsþekktan og að Bubble, Gloomy, Miss Maddy og allir hinir Tulipoppararnir komist í sama flokk og persónur á borð við Hello Kitty, Barbapabbi, og Múmínálfarnir,“ er haft eftir Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóra Tulipop.

Haft er eftir Svönu Gunnarsdóttur, fjárfestingastjóra hjá Frumtaki að Tulipop sé spennandi fjárfestingakostur. Segir hún fyrirtækið byggja á íslensku hugviti og búi yfir miklum möguleikum til vaxtar á alþjóðamarkaði.

Fyrirtækið Tulipop var stofnað árið 2010 af Signýju Kolbeinsdóttur, vöruhönnuði og teiknara, og Helgu Árnadóttur, tölvunarfræðingi og MBA. Hjá Tulipop starfa 4 starfsmenn, en Tulipop vörulínan hefur verið seld til um 120 verslana í 14 löndum, auk þess að vera til sölu í fjölda verslana hérlendis. Tulipop rekur einnig dótturfyrirtækið Trix vöruþróun ehf., sem sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á vönduðum auglýsinga- og gjafavörum fyrir íslensk fyrirtæki og hönnuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK