Fá að fjárfesta erlendis fyrir 40 milljarða

Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að veita lífeyrissjóðum undanþágu frá gjaldeyrishöftum til fjárfestingar erlendis. Samanlagt nemur heimildin að minnsta kosti 40 milljörðum króna sem gildir til loka september næstkomandi.

Frá miðju síðasta ári til loka júní í ár hefur lífeyrissjóðunum verið veitt heimild til fjárfestingar í fjármálagerningum útgefnum í erlendum gjaldeyri alls að fjárhæð 40 milljarða króna.

Undanþágan tekur til lífeyrissjóða og annarra innlendra vörsluaðila séreignarlífeyrissparnaðar, að því er segir í tilkynningu.

Gjaldeyrisinnstreymi það sem af er þessu ári, ásamt minni óvissu um þróun greiðslujafnaðar í framhaldi af aflandskrónaútboði og nauðasamningum slitabúa, hefur skapað svigrúm til frekari fjárfestingar lífeyrissjóða og annarra vörsluaðila séreignarsparnaðar í fjármálagerningum útgefnum í erlendum gjaldeyri.

Í aflandskrónuútboði sem fram fór um miðjan júní var ráðstafað úr gjaldeyrisforða rúmlega 54 milljarða króna. Að útboði afloknu nemur forðinn því u.þ.b. 158% af viðmiði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins varðandi stærð gjaldeyrisforða. Sjóðurinn telur æskilegt að hlutfallið sé að minnsta kosti 150% í aðdraganda þess að fjármagnshöft á innlenda aðila yrðu losuð og Seðlabankinn hefur tekið undir þá skoðun.

Forðinn er því um það bil 34 milljarðar króna yfir þessu viðmiði. Í ljósi rúmrar stöðu forða, áframhaldandi gjaldeyrisinnstreymis og þess að óvissan um hversu miklum gjaldeyrisforða yrði ráðstafað í aflandskrónuútboðinu er ekki lengur til staðar, hefur svigrúm Seðlabankans til þess að hækka heimildir lífeyrissjóðanna til erlendra fjárfestingar aukist.

Verði gjaldeyrisinnstreymi mikið næstu mánuði kemur til álita að veita viðbótarheimildir, umfram þá 40 milljarða sem nú hefur verið tekin ákvörðun um. Undanþágur sem sjóðunum verða veittar munu gera ráð fyrir þeim möguleika.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri. mbl.is/Golli

„Eins og áður eru rökin fyrir undanþágunni þau að þjóðhagslegur ávinningur fylgir því að gera lífeyrissjóðunum kleift að bæta áhættudreifingu í eignasöfnum og minnka uppsafnaða erlenda fjárfestingarþörf þeirra þegar fjármagnshöft verða losuð á innlenda aðila. Þar með er dregið úr hættu á óstöðugleika í gengis- og peningamálum við losun fjármagnshafta. Til lengri tíma litið hafa þessar auknu heimildir sjóðanna hverfandi áhrif á gjaldeyrisstöðuna því gera má ráð fyrir að gjaldeyriskaup lífeyrissjóðanna á næstu mánuðum muni draga úr þörf þeirra til gjaldeyriskaupa í framtíðinni.

Fjárfestingarheimildinni verður skipt á milli lífeyrissjóðanna og annarra vörsluaðila með þeim hætti að annars vegar verður horft til samtölu eigna, sem fær 86% vægi, og hins vegar til iðgjalda að frádregnum lífeyrisgreiðslum, sem fær 14% vægi. Útreikningurinn byggir á upplýsingum úr síðustu ársreikningabók Fjármálaeftirlitsins um lífeyrissjóði, þ.e. tölum frá árinu 2014. Undanþágan mun miðast við að heimild hvers aðila gildi til 30. september 2016,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK