WOW kaupir fjórar nýjar Airbus-vélar

Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW air, og Fabrice Brégier, …
Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW air, og Fabrice Brégier, forstjóri Airbus.

Flugfélagið WOW air hefur fest kaup á fjórum glænýjum Airbus A321-flugvélum beint frá framleiðenda Airbus. Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW ai,r og Fabrice Brégier, forstjóri Airbus, skrifuðu undir samninginn í dag á flugvélasýningunni Farnborough í Bretlandi.

Listaverð vélanna er 55 milljarðar íslenskra króna eða 459,6 milljónir bandaríkjadala og verða nýju flugvélarnar afhentar árð 2017 og 2018.

Floti WOW air, sem eingöngu samanstendur af Airbus-flugvélum, stækkar nú úr 11 flugvélum í 17 á næsta ári með þessum kaupum auk annarra flugvélasamninga sem þegar hafa verið kynntir. Átta af þessum 17 vélum verða alfarið í eigu WOW air.

„Að verða eitt öflugasta lággjaldaflugfélag heims“

„Við erum ánægð með að bæta glænýjum Airbus A321-flugvélum við okkar sívaxandi flota. WOW air er að verða eitt öflugasta lággjaldaflugfélag heims og við hlökkum til að halda áfram að vaxa og dafna í samstarfi við Airbus,“ er haft eftir Skúla Mogensen, forstjóra og stofnanda WOW air, í tilkynningu.

„Við bjóðum WOW air velkomið í hóp viðskiptavina okkar. Nýju Airbus A321-flugvélarnar munu falla vel að flota WOW air þar sem viðhaldskostnaður er í lágmarki en þægindi fyrir farþega í hámarki,“ er þá haft eftir JohnLeahy, framkvæmdastjóra hjáAirbus.

Skrifað var undir samninginn í dag á flugvélasýningunni Farnborough í …
Skrifað var undir samninginn í dag á flugvélasýningunni Farnborough í Bretlandi.

Tveggja og hálfs árs meðalaldur

Floti WOW air er ungur að árum en meðalaldur flugvélanna er aðeins tvö og hálft ár. Skammt er síðan keyptar voru þrjár nýjar Airbus A330-300-breiðþotur sem bera 350 farþega og hafa drægni upp á sex þúsund sjómílur. Sætabil í vélunum er 31 til 35 tommur sem er meira en hefðbundin farrými hjá flestum flugfélögum sem eru oftast 29 til 31 tomma. Airbus A330-300-breiðþoturnar bera nöfnin TF-GAY, TF-LUV og TF-WOW.

WOW air rekur einnig tvær Airbus A320-200-flugvélar sem skráðar eru undir heitinu TF-BRO og TF-SIS auk sex Airbus A321 flugvéla sem bera nöfnin TF-MOM, TF-DAD, TF-SON, TF-KID, TF-GMA og TF-GPA.

Í tilkynningu segir að WOW air hafi kosið að fjölga Airbus A321-flugvélunum í flota sínum vegna rýmra farþegarýmis, lágs viðhaldskostnaðs og þess hversu sparneytnar þær eru. Flugvélarnar verða notaðar í flugi bæði innan Evrópu og til Norður-Ameríku.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK