Veitingastaðurinn Silfur sektaður

AFP

Neytendastofa kannaði ástand verðmerkinga hjá veitingastaðnum Silfur í Hafnarfirði og leiddi skoðunin í ljós að matseðil vantaði við inngöngudyr auk þess sem ekki voru tilgreindar magnupplýsingar drykkja.

Í mars síðastliðnum var framkvæmd önnur skoðun hjá veitingastaðnum og kom þá í ljós að ekki hafði verið bætt úr merkingum. Gerðar voru athugasemdir við að magnupplýsingar vantaði fyrir léttvínsglös og gos á drykkjarseðil. 

Neytendastofa lagði því fimmtíu þúsund króna stjórnvaldssekt á Silfur.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK