Najib Razak, forsætisráðherra Malasíu, liggur undir ámæli vegna ásakana bandarískra stjórnvalda um stórfelldan þjófnað úr fjárfestingarsjóði í eigu malasíska ríkisins.
Razak setti sjóðinn, 1MDB, á stofn árið 2009 í þeim tilgangi að fjárfesta í stórverkefnum á sviði efnahags- og félagsmála í landinu.
Loretta Lynch, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, segir margt benda til þess að fé hafi verið tekið ófrjálsri hendi úr sjóðnum. Þetta sé fé malasískra skattgreiðenda.
Bandarísk yfirvöld lögðu í morgun hald á eignir í tengslum við sjóðinn að virði eins milljarðs Bandaríkjadala.
Ekki er minnst á Najib á nafn í gögnum málsins og sjálfur hefur hann neitað sök. Í gögnum málsins kemur þó fram að „malasískur embættismaður 1“ hafi hlotið milljónir dala úr sjóðnum. Er talið að embættismaðurinn sé Najib.
Talið er að þremur og hálfum milljörðum dala hafi verið stolið úr sjóðnum. Rannsókn stendur enn yfir á því hvernig á því standi að sjóðurinn hafi verið kominn í ellefu milljarða dala skuldir.
Hluti fjárins var millifærður í gegnum bankareikninga í Sviss.
Ríkissaksóknari í Malasíu hreinsaði Najib af sök fyrr á árinu. Hann hafði áður vikið fyrrum ríkissaksóknara landsins frá eftir að sá gagnrýndi starfshætti forsætisráðherrans í tengslum við málið.
Stjórnarandstaðan í Malasíu hefur krafist þess að Najib segi af sér. Mahathir Mohamad, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, segir engan vafa á því að Najib beri ábyrgð á fjármálum sjóðsins.
Hann segir að íbúar Malasíu eigi að fjölmenna út á götur og krefjast afsagnar Najibs.
Wan Azizah Wan Ismail, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, segir að Najib eigi að víkja tafarlaust. Ekki aðeins vegna þess að hann hefði misnotað völd sín, heldur einnig til þess að tefja ekki þessa „mjög mikilvægu“ rannsókn.