Air Berlin bætir við vetrarferðum

Ljósmynd/Air Berlin

Forvarsmenn þýska flugfélagsins Air Berlin hafa ákveðið að fljúga til Íslands allt árið um kring frá Düsseldorf. Hingað til hefur aðeins verið hægt að fljúga til þýsku borgarinnar yfir sumarmánuðina.

Greint er frá þessu á vefnum Túristi.is. Flugfélagið, sem er það næststærsta í Þýskalandi, hefur boðið upp á sumarferðir til landsins síðustu ellefu ár, en það var í fyrsta sinn í fyrra að þotur félagsins sáust við flugstöð Leifs Eiríkssonar að vetrarlagi.

Þá voru farnar tvær ferðir í viku héðan til Tegel-flugvallar í Berlín og varð Air Berlin þar með fyrsta þýska flugfélagið til að bjóða upp á Íslandsflug utan aðalferðamannatímabilsins.

Viðtökurnar við Berlínarferðunum síðastliðinn vetur voru hins vegar það góðar, að sögn Theresu Kahn, talsmanns Air Berlin, að nú hafa forsvarsmenn flugfélagsins ákveðið að fljúga einnig til Íslands allt árið um kring frá Düsseldorf. 

Í fréttinni segir að sala á ferðum Air Berlin á milli Keflavíkurflugvallar og Düsseldorf í vetur hafi farið mjög vel af stað. Segir Kahn útlitið því gott fyrir þessa nýju heilsársflugleið félagsins á Íslandi. Líkt og í Berlínarflugi Air Berlin verður flogið tvisvar í viku hingað til lands frá Düsseldorf, alla fimmtudaga og sunnudaga.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK