Kaupir kvóta fyrir fjóra milljarða

mbl.is/Þórður

HB Grandi hefur fest kaup á aflahlutdeildum í bolfiski sem svara til tæplega 1.600 þorskígildistonna af Hafnarnesi VER í Þorlákshöfn.

Kaupverðið er 3.950 milljónir króna, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Ríflega helmingur aflaheimildanna er í þorski og er félagið með þessum kaupum að tryggja afla til vinnslu á Vopnafirði, án þess að skerða afla til annarra starfsstöðva félagsins.

Aflahlutdeild HB Granda fer eftir kaupin úr um 43.800 þorskígistonnum í um 45.400 þorskígildistonn eða úr 10,7% af heildaraflahlutdeild í 11,1%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK