Notkun gagnamagns jókst um 600%

Íslenskir áhangendur á EM í Frakklandi.
Íslenskir áhangendur á EM í Frakklandi. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Gagnamagnsumferð viðskiptavina Vodafone sem voru á ferð í Frakklandi í júní jókst um ríflega 600% á hvern notanda miðað við sama tímabil í fyrra.

EM í knattspyrnu fór fram í Frakklandi og flykktust Íslendingar þangað í júní og virtust flestir þeirra hafa verið með símana sína á lofti.

„Símnotkun viðskiptavina bar vinsældum Frakklands skýrt merki en alls mældist ríflega 600% aukning í gagnamagnsnotkun hvers viðskiptavinar Vodafone á ferð þar á tímabilinu. Eins  hringdu  viðskiptavinir líka meira og sendu sms á milli Frakklands og Íslands en í báðum tilfellum mældist um 90% aukning á milli ára,“ segir í tilkynningu frá Vodafone.

Þar kemur fram að aukningin endurspegli bæði frábæran árangur Íslands á EM og þá staðreynd að kostnaður við notkun farsíma erlendis hafi farið lækkandi undanfarið.

„Ljóst er að liðin er sú tíð að menn slökkvi á farsímanum um leið og lent er í nýju landi. Snjallsíminn er alltaf við höndina, enda allt í senn; samskipta- og öryggistæki, myndavél, upplýsingaveita, innkaupaleið o.s.frv,“ segir Stefán Sigurðsson, forstjóri Vodafone, í tilkynningunni.  

„Það fór ekki fram hjá neinum hversu duglegir Íslendingar voru að ferðast til Frakklands að styðja landsliðið og deila á samfélagsmiðlum. Tölurnar tala sínu máli auk þess sem ódýrara er en nokkru sinni að nota snjallsímann áhyggjulaust í útlöndum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK