Aðstoðin virði 4,640 milljarða króna

Sólarkísilverksmiðja Silicor Materials mun rísa á svæðinu á Grundartanga sem …
Sólarkísilverksmiðja Silicor Materials mun rísa á svæðinu á Grundartanga sem gulu línurnar ramma inn. Ljósmynd/Faxaflóahafnir

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur samþykkt byggðaaðstoð til Silicor Materials vegna byggingar á sólarkísilverksmiðju á Grundartanga. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá EFTA. Þar segir að aðstoðin sé virði um 4,640 milljarða íslenskra króna og verður í formi skattahagræðis og ívilnandi reglna um leigu og fyrningu. Gert er ráð fyrir að verksmiðjan skapi um 450 störf og stuðli að efnahagslegri uppbyggingu á svæðinu.

Samkvæmt leiðbeiningarreglum um byggðaaðstoð verður EFTA-ríkið að sýna fram á að hin fyrirhugaða aðstoð sé viðeigandi og stuðli að byggðaþróun. Ríki þurfa einnig að tryggja að aðstoðinni sé stillt í hóf og að hagræði af henni vegi þyngra en möguleg samkeppnisröskun.

„Aðstoðin til Silicor Materials á Vesturlandi er byggð á uppbyggingarstefnu, sem hefur í för með sér ávinning fyrir allt svæðið og því hefur ESA samþykkt hana,“ er haft eftir Sven Erik Svedman, forseta ESA, í tilkynningu.

„ESA hefur auk þess komist að þeirri niðurstöðu að hin fyrirhugaða aðstoð hafi hvatningaráhrif þar sem ekki hefði verið ráðist í framkvæmdir án fyrirheita um ríkisaðstoð. Aðstoðin stuðlar þar með að atvinnusköpun, laðar til sín fyrirtæki, eykur efnahagslega fjölbreytni og býr til störf,“ segir í tilkynningunni.

Opinber útgáfa ákvörðunarinnar verður birt á vefsíðu ESA, væntanlega innan eins mánaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK