CCEP yfirtekur Vífilfell

Carlos Crus, forstjóri CCEP á Íslandi.
Carlos Crus, forstjóri CCEP á Íslandi. Ljósmynd/Aðsend

Coca-Cola European Partners (CCEP), stærsta sjálfstæða átöppunarfyrirtæki Coca-Cola í heiminum og leiðandi fyrirtæki á markaði með neytendavörur í Evrópu, hefur gengið frá yfirtöku á Vífilfelli, sem framleiðir og dreifir Coca-Cola á Íslandi. CCEP er nú með starfsemi í 13 löndum í Vestur-Evrópu.

CCEP framleiðir, dreifir og markaðssetur nokkur af vinsælustu drykkjarvörumerkjum heims til yfir 300 milljóna neytenda í Vestur-Evrópu. Hjá fyrirtækinu starfa um 25 þúsund manns og voru áætlaðar tekjur fyrir árið 2015 um 11 milljarðar evra, eða 1.500 milljarðar króna, að því er kemur fram í tilkynningu.

10,8 milljarða velta

Vífilfell er eitt stærsta fyrirtæki á Íslandi í neytendavörum og er leiðandi á sviði gosdrykkja og bjórs. Velta þess er um 10,8 milljarðar króna (78 milljónir evra). Starfsemi fyrirtækisins nær til allra landshluta á Íslandi og þjónustar Vífilfell um 2.300 fyrirtæki um land allt.

Vífilfell var stofnað sem fjölskyldufyrirtæki árið 1942 af Birni Ólafssyni ráðherra. Höfuðstöðvar þess hafa alla tíð verið í Reykjavík og eru starfsmenn Vífilfells nú um 230 talsins.

Ánægð að fá Ísland inn í reksturinn

„Coca-Cola European Partners er alþjóðlegt fyrirtæki en fjárfestir, framleiðir, dreifir og ræður fólk til starfa í hverju landi fyrir sig. Við erum afar ánægð með að fá Ísland inn í rekstur okkar,“ segir John F. Brock, forstjóri CCEP, í tilkynningunni.

„Vífilfell og starfsmenn þess ráða yfir glæsilegu úrvali vörumerkja og búa yfir mikilli reynslu af því að koma breiðu úrvali af vörum í hendur neytenda í gegnum smásöluverslanir á Íslandi. Okkur er annt um efnahagslega og félagslega velferð þeirra landa sem við störfum í og við erum afar glöð með að verða hluti af íslensku samfélagi í gegnum Vífilfell.“ 

Spennt yfir tækifærunum

Carlos Cruz, forstjóri CCEP á Íslandi og fyrrverandi forstjóri Vífilfells, hefur þetta að segja: „Við erum afar stolt af því að verða hluti af Coca-Cola European Partners-fjölskyldunni og spennt yfir þeim tækifærum sem eru framundan. Nú þegar við erum hluti af stóru sameinuðu fyrirtæki höfum við sveigjanleika, stærðarhagkvæmni og nýsköpunarkraft til að skapa vöxt og fá fleiri viðskiptavini og neytendur til að velja vörumerkin okkar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK