Kvarta yfir áskriftarleiðum DV

Áskriftarleiðir sem nefndar hafa verið eru margvíslegar en svo virðist …
Áskriftarleiðir sem nefndar hafa verið eru margvíslegar en svo virðist sem félagsmenn séu í einhverjum tilfellum ósáttir þar sem þeir telja þær upplýsingar sem fram hafi komið í umræddum símtölum ekki hafa staðist þegar á reyndi. mbl.is/Sverrir

Neytendasamtökin hafa undanfarið fengið nokkurn fjölda erinda er varða áskriftarleiðir DV og símtöl sem félagsmenn hafa fengið, þar sem þeim er boðin áskrift. Áskriftarleiðir sem nefndar hafa verið eru margvíslegar en svo virðist sem félagsmenn séu í einhverjum tilfellum ósáttir þar sem þeir telja þær upplýsingar sem fram hafa komið í umræddum símtölum ekki hafa staðist þegar á reyndi. Þetta kemur fram á vefsíðu Neytendasamtakanna.

Þar segir að samtökin taki að sér milligöngu fyrir félagsmenn sína í málum sem þessum og hafa þegar verið í sambandi við DV vegna málsins. Hvetja samtökin þá félagsmenn sem lent hafa í vandræðum vegna viðskipta við DV að hafa samband við skrifstofu Neytendasamtakanna. Einnig geta þeir sem ekki eru félagsmenn gengið í samtökin, vilji þeir að samtökin taki að sér milligöngu vegna málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK