Verðlækkun hjá Bílabúð Benna

Opel Astra er meðal bíla sem Bílabúð Benna selur.
Opel Astra er meðal bíla sem Bílabúð Benna selur.

Bílabúð Benna hefur ákveðið að lækka verð á öllum nýjum bílum hjá fyrirtækinu vegna styrkingar krónunnar. Þær bílgerðir sem um ræðir eru: Opel, Chevrolet, SsangYong og Porsche.

Verðækkunin er mismunandi eftir tegundum, en getur numið umtalsverðum upphæðum, að sögn Bílabúðar Benna. Verðlækkunin gildir frá og með deginum í dag, 5. ágúst.

„Við höfum lagt metnað okkar í að standa verðlagsvaktina og láta viðskiptavini njóta bestu mögulegra kjara á hverjum tíma. Vegna hagstæðarar gengisþróunar að undanförnu sjáum við nú svigrúm til að lækka verð á nýjum bílum og létta þannig undir með því fólki sem er í bílahugleiðingum. Sem dæmi um verðlækkunina, langar mig til að nefna Bíl ársins í Evrópu, Opel Astra, sem fer úr 3.190 þús. í 2.990 þús. kr. og Tivoli, smájeppann vinsæla frá SsangYong, sem lækkar úr 3.790 þús. kr. í 3.490 þús. kr. eða um 300.000 kr., “ segir Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar Benna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK