„Tilfinningin við að ljúka við stór verk er mjög góð ef allt gengur vel og allir vinna saman,“ segir Auðunn Kjartansson múrarameistari sem nýverið skilaði af sér stóru verki sem er afrakstur tveggja ára vinnu. „Það var gríðarlega metnaðarfullt starf og metnaðarfyllsta verk sem ég hef tekið að mér,“ segir Auðunn um nýjar höfuðstöðvar Alvogen í Vatnsmýrinni sem teknar voru í notkun á dögunum.
Auðunn fer mikið í golf og í þætti vikunnar af Fagfólkinu hittum við hann á Oddfellow-vellinum í Garðabæ.
Þótt hann hafi ekki verið með bakteríuna lengi hefur hann náð að vinna í forgjöfinni sem hann stefnir að vera búinn að ná undir 20 fyrir lok sumars. Útiveruna segir hann einn stærsta kostinn við golfið en hann kann líka vel að meta sálfræðilega þáttinn í íþróttinni, það sem hann kallar „hugarleikfimina“. „Maður er einn með sjálfum sér oft og tíðum og er að spá hvert maður á að slá og hvernig maður á að slá,“ segir Auðunn sem rekur fyrirtækið Aðalmúr.