Hófleg verðbólga næstu mánuði

Í Morgunkorni bankans segir að útsölulok setji ávallt mark sitt …
Í Morgunkorni bankans segir að útsölulok setji ávallt mark sitt á mælingu vísitölu neysluverðs í ágúst og er ekki talið að það breytist í ár. „Á heildina litið teljum við þó að þeir vöruflokkar sem þyngst vega í útsölum lækki í verði á þriðja ársfjórðungi þegar útsöluáhrif eru um garð gengin, enda um innfluttar vörur að ræða.“ mbl.is/Eggert Jóhannesson

Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,2% í ágúst frá fyrri mánuði. Gangi spáin eftir hjaðnar 12 mánaða taktur verðbólgunnar úr 1,1% í 0,8%. Verðbólgan fer því niður fyrir 1,0% neðri þolmörk Seðlabankans samkvæmt spánni. Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka í dag.

Þar segir að verðbólguhorfur til skemmri tíma hafi batnað nokkuð frá síðustu spá greiningardeildarinnar. Er nú útlit fyrir að verðbólga haldist undir 2,5% markmiði Seðlabankans fram í árslok 2017. Í kjölfarið mun verðbólga hins vegar aukast hratt og fara yfir 4,0% efri þolmörk verðbólgumarkmiðs bankans á seinni hluta ársins 2018.

Útsölulok hafa alltaf áhrif

Í Morgunkorni bankans segir að útsölulok setji ávallt mark sitt á mælingu vísitölu neysluverðs í ágúst og er ekki talið að það breytist í ár. „Á heildina litið teljum við þó að þeir vöruflokkar sem þyngst vega í útsölum lækki í verði á þriðja ársfjórðungi þegar útsöluáhrif eru um garð gengin, enda um innfluttar vörur að ræða.“

Áætlað er að föt og skór hækki í verði um 5,0% en að í heild vegi útsölulok til um 0,25% hækkunar vísitölu neysluverðs í ágúst þegar með eru tekin útsölulok í öðrum flokkum. 

Að útsöluáhrifum slepptum vegur húsnæðisliður vísitöluu neysluverð mest til hækkunar hennar eða 0,16%. Er það að stærstum hluta vegna 1,0% hækkunar á reiknaðri húsaleigu en könnun okkar bendir til þess að hækkun íbúðaverðs reynist talsverð í vísitöluneysluverðs-mælingunni nú. Loks eru horfur á að verðhækkun á þjónustu veitingahúsa vegi til 0,04% hækkunar VNV, enda ferðamannatíminn í algleymingi og kostnaðarþrýstingur vegna launahækkana talsverður í þeim geira. Auk þess vegur liðurinn menntun til 0,03% hækkunar eins og gjarnarn er í ágústmánuði vegna hækkunar skólagjalda í HR. 

Hófleg verðbólga næstu mánuði

Útlit er fyrir hóflega verðbólgu næstu mánuði, ekki síst vegna áframhaldandi áhrifa af styrkingu krónu. Greiningardeildin spáir óbreyttri vísitölu neysluverðs september, 0,1% hækkun  í október en 0,1% lækkun í nóvember. Verðbólga mun samkvæmt því mælast 1,5% í nóvember. 

Útlit er fyrir áframhaldandi hóflega verðbólgu hérlendis svo lengi sem gengi krónu gefur ekki eftir á nýjan leik. „Við spáum því að verðbólga verði að jafnaði 1,6% á árinu 2017, og að í lok næsta árs mælist hún 2,2%. Í kjölfarið teljum við hins vegar að verðbólga muni aukast hratt, fara yfir 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans í upphafi ársins 2018 og rjúfa efri þolmörk markmiðsins, sem eru 4,0%, á 3. fjórðungi þess árs. Verðbólga rauf þau mörk síðast í árslok 2013.“

Kemur jafnframt fram að gengi krónu ráði mestu um þá verðbólguþróun sem hér er spáð til meðallangs tíma. Við gerum ráð fyrir áframhaldandi styrkingu krónu fram á 3. ársfjórðung 2017, og að styrkingin nemi u.þ.b. 5% frá núverandi gildum.

„Í kjölfarið teljum við hins vegar að gengi krónu taki að lækka á nýjan leik, enda raungengið þá orðið nokkuð hátt, farið að hægja á hagvexti og spennunni í hagkerfinu og tekið að draga úr gjaldeyrisinnflæði vegna viðskiptaafgangs. Veikingu krónu fylgir aukin verðbólga, en það mildar þó höggið að útlit er fyrir hægari hækkun á launakostnaði og íbúðaverði á seinni hluta spátímans.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK