Seldi í Reitum fyrir 3,9 milljarða

Markaðsviðskipti Landsbankans höfðu umsjón með útboðinu og á heimasíðu bankans …
Markaðsviðskipti Landsbankans höfðu umsjón með útboðinu og á heimasíðu bankans kemur fram að sölugengi í útboðinu hafi verið ákveðið 83,30 krónur á hlut. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjárfestar óskuðu eftir því að kaupa 73.010.000 hluta í Reitum, eða sem nemur 9,9% af heildarhlutafé félagsins, í útboði á eignarhlut ríkissjóðs í Reitum sem lauk í morgun. Markaðsviðskipti Landsbankans höfðu umsjón með útboðinu og á heimasíðu bankans kemur fram að sölugengi í útboðinu hafi verið ákveðið 83,30 krónur á hlut.

Heildarnafnverð samþykktra tilboða eftir skerðingu var 47.222.796 hlutir eða sem samsvarar 6,38% af heildarhlutafé Reita. Heildarsöluverðmæti samþykktra tilboða eftir skerðingu er því rúmlega 3,9 milljarðar króna. Að útboðinu loknu á ríkissjóður ekki eignarhlut í Reitum.

Öll samþykkt tilboð voru boðin fjárfestum á sama gengi, þar sem lægsta samþykkta gengi réð sölugenginu. Samþykkt tilboð sem bárust á sama gengi og sölugengi voru skert sem nam umframeftirspurn, en þó ekki niður fyrir 200.000 hluti að nafnverði sem var lágmarksfjöldi hluta sem hægt var að bjóða í útboðinu. Tilboðum sem bárust á lægra gengi en sölugengi var hafnað.

Viðskiptadagur vegna útboðsins er í dag og greiðslu- og afhendingardagur vegna viðskiptanna er á miðvikudaginn.

Fyrri frétt mbl.is: Selur 6,38% eignarhlut í Reitum

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK