Jóhann selur hlut sinn í Forlaginu

Jóhann Páll muni gegna fullu starfi til áramóta eins og …
Jóhann Páll muni gegna fullu starfi til áramóta eins og verið hefur. Að ósk hluthafa mun hann gegna ráðgjafastörfum fyrir Forlagið a.m.k. næstu tvö árin. mbl.is/Brynjar Gauti

Jóhann Páll Valdimarsson, útgefandi Forlagsins, hefur selt 42,5% hlut sinn í fyrirtækinu. Samkvæmt samkomulagi hluthafa mun Forlagið kaupa hlutinn sjálft en við það verður bókmenntafélagið Mál og menning aðaleigandi félagsins ásamt Agli Erni Jóhannssyni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Forlaginu. 

Þar segir að Jóhann Páll muni gegna fullu starfi til áramóta eins og verið hefur. Að ósk hluthafa mun hann gegna ráðgjafastörfum fyrir Forlagið a.m.k. næstu tvö árin.

Nýr útgefandi Forlagsins verður Hólmfríður Úa Matthíasdóttir sem hefur veitt Réttindastofu Forlagsins forstöðu.

Engar breytingar eru fyrirhugaðar á rekstri og starfsmannahaldi Forlagsins vegna þessa. Egill Örn Jóhannsson mun áfram gegna starfi framkvæmdastjóra eins og verið hefur.

Forlagið gefur út bækur undir nafni JPV útgáfu, Máls og menningar, Vöku-Helgafells og Iðunnar auk þess sem það starfrækir bókabúð á Fiskislóð.

Jóhann Páll starfaði hjá bókaútgáfunni Iðunni 1974-84 og stofnaði þá Forlagið og var útgefandi þess til ársins 2000. Þá stofnaði hann JPV útgáfu ásamt Agli Erni Jóhannssyni og fleirum. Árið 2007 sameinaðist JPV útgáfa bókahluta Eddu, sem bókmenntafélag MM hafði þá nýverið fest kaup á og sem hafði á að skipa Máli og menningu, Vöku-Helgafelli og Iðunni. Sameinað fyrirtæki hefur síðan borið heitið Forlagið.

Hólmfríður Matthíasdóttir hefur starfað lengi við bókaútgáfu á Spáni og hérlendis. Hún hefur stýrt réttindastofu Forlagsins frá stofnun félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK