Aldrei jafnódýrt að ferðast

Horft yfir brottfararsalinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík.
Horft yfir brottfararsalinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík. mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Meðalverð á flugferðum frá Keflavík er nú 44.045 krónur báðar leiðir og hefur ekki verið lægra þann tíma sem Dohop hefur kannað verð á flugi til og frá landinu.

Aldrei hafa fleiri flugfélög haldið uppi áætlunarflugi til og frá Keflavík og samkeppnin útskýrir að hluta þessar miklu lækkanir á verði, sem og áframhaldandi lágt verð á olíu, segir í tilkynningu frá Dohop.

Þegar verð á flugi til þeirra áfangastaða sem samkeppni ríkir um á markaði er skoðað fyrir næstu vikur kemur fram, eins og Dohop hafði reyndar áður spáð fyrir um, áberandi lækkun milli tímabila. Alls lækkar verð á flugi um rúm 23%. Mestu ráða þar miklar lækkanir á flugi til borga í Evrópu, til að mynda Mílanó, Kaupmannahafnar og Barselóna.

Meðalverð á flugi.
Meðalverð á flugi. Dohop
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK