Vísitala neysluverðs hækkar um 0,34%

Sumarútsölum er víða lokið og hækkaði verð á fatnaði og …
Sumarútsölum er víða lokið og hækkaði verð á fatnaði og skóm um 6,6% sem hafði 0,25% áhrif á vísitöluna. mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í ágúst 2016 er 436,4 stig og hækkaði um 0,34% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 396,5 stig og hækkaði hún um 0,13% frá júlí. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Þar er bent á að sumarútsölum sé víða lokið og hækkaði verð á fatnaði og skóm um 6,6% sem hafði 0,25% áhrif á vísitöluna. Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði, þ.e. reiknuð húsaleiga, hækkaði um 1,5% en verð á bensíni og olíum lækkaði um 4,1% og verð á bílum lækkaði um 2,1%.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,9% en vísitalan án húsnæðis hefur lækkað um 0,9%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í ágúst 2016, sem er 436,4 stig, gildir til verðtryggingar í október 2016. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.617 stig fyrir október 2016.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK