Vera nýr framkvæmdastjóri félags SÞ

Sameinuðu þjóðirnar.
Sameinuðu þjóðirnar.

Vera Knútsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri félags Sameinuðu þjóðanna. Hún var ráðin úr hópi 93 umsækjenda eftir ráðningarferli hjá Capacent.

„Við erum mjög þakklát fyrir þann sterka hóp umsækjenda heima og erlendis sem sóttu um starfið,“ segir Þröstur Freyr Gylfason, formaður félags SÞ, í fréttatilkynningu. „Við teljum að ráðningarferlið hafi skilað okkur afar hæfum framkvæmdastjóra, enda býr Vera að víðtækri reynslu og þekkingu á alþjóða- og þróunarmálum, m.a. af vettvangi í Líbanon og Sómalíu. Við vitum að sú reynsla kemur til með að nýtast mjög vel í störfum félagsins í þágu aukinnar almanna­vitundar, fræðslu og samfélagsumræðu á Íslandi um Sameinuðu þjóðirnar og þróunarmál,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Vera Knútsdóttir hefur um fimm ára reynslu af alþjóðastarfi og þar af þriggja ára reynslu af störfum hjá Sameinuðu þjóðunum. Vera hefur reynslu af mannúðarstarfi og flóttamannaaðstoð og hefur starfað bæði hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, í Sómalíu og Flóttamannaaðstoð SÞ fyrir Palestínumenn, UNRWA, í Líbanon.

Áður var hún í starfsnámi á viðskiptasviði og alþjóða- og öryggissviði utanríkisráðuneytisins, þ.á.m. verkefnum tengdum mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Vera lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 2009 og MA-gráðu í öryggis- og varnarmálafræðum frá Georgetown háskóla í Bandaríkjunum árið 2011.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK