Hafliði snýr aftur til 365

Hafliði Helgason hefur verið ráðinn ritstjóri efnahags- og viðskiptafrétta hjá fréttastofu 365. Hann mun annast ritstjórn Markaðarins, fylgiblaðs Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál, ásamt fleiru. Greint er frá þessu í Fréttablaðinu í dag.

Hafliði var í hópi fyrstu blaðamanna Fréttablaðsins við stofnun þess árið 2001 og starfaði þar óslitið til ársins 2007. 

Frá 2007 hefur Hafliði unnið að ýmsum verkefnum tengdum fjárfestingum, nú síðast sem sérfræðingur hjá Framtakssjóði Íslands frá árinu 2012. Hann er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og á að baki nám í blaðamennsku í Svíþjóð og heimspeki við Háskóla Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK