Styrkja viðskiptasamband við Nígeríu

Lilja Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, og Geoffrey Jideofor Kwusike Onyeama, utanríkisráðherra …
Lilja Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, og Geoffrey Jideofor Kwusike Onyeama, utanríkisráðherra Nígeríu að loknum fundi í Abuja í Nígeríu

Formlegur samstarfsvettvangur vegna viðskipta milli Íslands og Nígeríu er í burðarliðnum, eftir að utanríkisráðherra Nígeríu lýsti stuðningi við tillögu Lilju Alfreðsdóttur þess efnis á fundi þeirra í Abuja í Nígeríu. Markmiðið er að styrkja viðskiptasamband ríkjanna, auka gagnkvæm viðskipti og kanna möguleikann á útflutningi á íslensku hugviti til Nígeríu, m.a. tæknilausnum í fiskvinnslu og útgerð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu, en Lilja er nú í heimsókn í Nígeríu.

Nígería hefur um langt skeið verið afar mikilvægur markaður fyrir herta þorskhausa og annan þurrkaðan fisk frá Íslandi. Útflutningsverðmætið nam 13,8 milljörðum króna á síðasta ári og var Nígería þá annar stærsti útflutningsmarkaður íslenskra afurða utan Evrópu, næst á eftir Bandaríkjunum. Á þessu ári hefur útflutningurinn hins vegar dregist saman um ríflega 60% vegna efnahagsþrenginga og tollahækkana. Nígería glímir við mikinn efnahagsvanda sökum verðfalls á olíu, sem er helsta útflutningsvaran. Vegna verðfallsins hafa tekjur nígeríska ríkisins lækkað um 70%, skv. upplýsingum frá Seðlabanka Nígeríu.
 
„Frá árinu 2010 höfum við flutt út vörur til Nígeríu fyrir 75 milljarða króna og öllum ætti að vera ljóst hve mikilvæg þessi viðskipti eru fyrir íslenska þjóðarbúið. Varan er mikils metin hér í Nígeríu og ég finn fyrir miklum áhuga á því að styrkja samband þjóðanna til hagsbóta fyrir báða aðila. Nígeríumenn horfa t.d. til þess árangurs sem náðst hefur á Íslandi við fullnýtingu á sjávarafurðum og þar kunna að vera tækifæri fyrir íslensk þekkingar- og nýsköpunarfyrirtæki,“ er haft eftir Lilju.
 
Vegna reglna hjá Seðlabanka Nígeríu geta innflytjendur á íslenskum fiski ekki keypt gjaldeyri á opinberum markaði. Þess í stað þurfa þeir að afla hans á hliðarmarkaði og greiða þar hátt verð fyrir dollarann. Það hefur þrýst niður verðinu sem íslenskir fiskverkendur hafa fengið fyrir vöruna. Til viðbótar hefur innflutningstollur á sjávarafurðir fjórfaldast á undanförnum 18 mánuðum, úr 5% í 20%.  
 
„Þrátt fyrir krefjandi aðstæður virðast ráðamenn áhugasamir um að auðvelda viðskipti milli landanna, enda hafa þau staðið í áratugi og eru mikils metin beggja vegna borðsins. Ég er bjartsýn á að þetta stærsta hagkerfi Afríku muni rétta úr kútnum og hér séu mörg tækifæri til frekari viðskipta,“ segir Lilja.

Heimsókn Lilju Alfreðsdóttur til Nígeríu hófst í gær og henni lýkur á morgun. Hún mun ræða við fjóra ráðherra í ríkisstjórn Nígeríu um samskipti ríkjanna auk þess sem hún fundar með Seðlabankastjóra Nígeríu og hittir kaupendur íslenskra fiskafurða. Með í för eru fulltrúar þeirra fyrirtækja sem framleiða og selja þurrkaðar íslenskar sjávarafurðir til Nígeríu, sendiherra Íslands gagnvart Nígeríu (með aðsetur í London) og fulltrúar Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK