Stýrivextirnir áfram 0,25%

Englandsbanki
Englandsbanki EPA

Engar breytingar voru gerðar á stýrivöxtum Englandsbanka á vaxtaákvörðunarfundi peningastefnunefndar bankans. Vextirnir eru 0,25% en voru lækkaðir síðast í ágúst, úr 0,50% í 0,25%. Þá höfðu stýrivextir Englandsbanka verið óbreyttir frá árinu 2009 eða í sjö ár. 

 Ákvörðun peningastefnunefndarinnar kemur ekki á óvart en vextirnir voru lækkaðir vegna niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um útgöngu Breta úr Evrópusambandinu í sumar. Aftur á móti er staðan í efnahagslífinu betri en búist var við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK