Hæsta tilboði tekið í Húsabakka

Eftir að skólahald var aflagt á staðnum árið 2004 hefur …
Eftir að skólahald var aflagt á staðnum árið 2004 hefur þar verið rekin ferðaþjónusta ásamt annarri starfsemi. Af heimasíðunni Tjalda.is

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar hefur samþykkt kauptilboð Stórvals ehf. í húseignirnar að Húsabakka.  Alls bárust sjö tilboð frá sex aðilum í eignirnar en framlengdur tilboðsfrestur rann út 31. ágúst sl.  Í fréttatilkynningu frá Dalvíkurbyggð kemur fram að tilboðin sem bárust hafi verið  á verðbilinu 24 – 61 milljónir og var hæsta tilboði tekið.  Ríkið á 30% í byggingunum og hefur það veitt sitt samþykki.

Um er að ræða tvær byggingar, önnur þeirra er byggð árið 1953 og er 675,8 fm og sú yngri er byggð árið 1966 og er 556,4 fm.  Eftir að skólahald var aflagt árið 2004 hefur verið rekin ferðaþjónusta á staðnum ásamt annarri starfsemi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK