Í samstarf við alþjóðlegt almannatengslafyrirtæki

Ráðgjafar Athygli ásamt Söru Alsen, framkvæmdastjóra Burson Marsteller á Norðurlöndum.
Ráðgjafar Athygli ásamt Söru Alsen, framkvæmdastjóra Burson Marsteller á Norðurlöndum.

Athygli hefur gerst samstarfsaðili almannatengslafyrirtækisins Burson Marsteller sem er eitt stærsta fyrirtækið á því sviði á heimsvísu með 73 skrifstofur og 85 samstarfsaðila sem samanlagt starfa í 110 ríkjum í sex heimsálfum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Athygli. 

„Við erum mjög spennt fyrir þessu samstarfi því í síbreytilegum heimi þar sem upplýsingar ferðast milli heimsálfa á augnabliki skiptir alþjóðlegt samstarfsnet öllu máli. Við fáum mun sterkari ásýnd meðal erlendra aðila sem vilja kynna sig á Íslandi og að sama skapi getum við nú boðið íslenskum viðskiptavinum okkar aðgang að enn víðtækri miðlun upplýsinga á heimsvísu,“ er haft eftir Kolbeini Marteinssyni, framkvæmdastjóra Athygli.

Saga Burson Marsteller spannar yfir 60 ár og félagið þjónustar mörg af stærstu fyrirtækjum samtímans sem eru leiðandi á sínu sviði. Athygli var stofnað árið 1989 og er í dag stærsta almannatengslafyrirtæki landsins. Samkomulagið hefur þegar tekið gildi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK