Einar Páll Tómasson hefur verið ráðinn forstöðumaður markaðs- og viðskiptaþróunardeildar Icelandair og tekur til starfa um næstu mánaðamót.
Í fréttatilkynningu frá Icelandair hefur Einar Páll starfað fyrir Icelandair erlendis um árabil. Hann hóf störf hjá félaginu árið 2005 sem sölustjóri í Hollandi. Árið 2006 tók hann við sem svæðisstjóri fyrir mið-Evrópu og árið 2008 sem svæðisstjóri Icelandair fyrir meginland Evrópu.
Á árunum 1999 – 2005 var Einar Páll markaðsstjóri MasterCard á Íslandi og var auk þess fulltrúi í “Branding & Sponsorhsip Work Group” hjá MasterCard í Evrópu. Einar Páll er með viðskiptafræðigráðu frá Norwegian School of Management með áherslu á alþjóðamarkaðsfræði og stjórnun. Einar Páll er giftur og með 3 börn.