Samþykktu reglur um stofnframlög

Ráðhús Reykjavíkur.
Ráðhús Reykjavíkur. mbl.is/Ómar Óskarsson

Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt reglur um stofnframlög til kaupa eða byggingar á íbúðum. Stofnframlögunum er ætlað að stuðla að því að í boði verði leiguíbúðir í Reykjavík á viðráðanlegu verði fyrir þá sem þurfa á því að halda, þ.m.t. fyrir námsmenn, ungt fólk, aldraða, fatlað fólk og fólk sem ekki er fært um að sjá sér fyrir húsnæði sökum félagslegra aðstæðna eða verulegs fjárhagsvanda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni.

Segir þar að þessi markmið falla að húsnæðisstefnu og húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar. Til að ná þessum markmiðum skal lögð sérstök áhersla á nýbyggingar og að fjölga leiguíbúðum. 

Stofnframlög fá einungis húsnæðissjálfseignarstofnanir t.a.m. Félagsbústaðir og lögaðilar sem eru alfarið í eigu Reykjavíkurborgar og þeir lögaðilar sem starfandi voru fyrir gildistöku laga um almennar íbúðir og uppfylla skilyrði laga til að fá lán frá Íbúðalánasjóði.

Stofnframlög frá ríki og hlutaðeigandi sveitarfélagi geta numið 30% af stofnkostnaði. Sá sem sækir um stofnframlag verður að sækja bæði um til Íbúðalánasjóðs vegna framlags ríkisins og til hlutaðeigandi sveitarfélags. Umsókn þarf að hljóta samþykki hjá báðum aðilum, Íbúðalánasjóði og  hlutaðeigandi sveitarfélagi.

Umsóknarfrestur um stofnframlög rennur út 15. október nk. Brýnt er að væntanlegir umsækjendur kynni sér reglur Íbúðalánasjóðs og Reykjavíkurborgar vel og gæti þess að senda inn umsókn og öll tilskilin gögn tímanlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK