Ölgerðin Egill Skallagrímsson hefur ráðið Jóhann Gunnar Jóhannsson sem framkvæmdastjóra fjármálasviðs fyrirtækisins. Jóhann Gunnar starfaði áður sem fjármálastjóri og aðstoðarforstjóri Icelandic Group en þar á undan starfaði hann m.a. hjá Bakkavör og Íslenskri erfðagreiningu sem forstöðumaður á fjármálasviði.
„Það er fengur í að fá mann eins og Jóhann Gunnar í þetta krefjandi starf og við hlökkum til samstarfsins á þeim spennandi tímum sem framundan eru,“ er haft eftir Andra Þór Guðmundssyni, forstjóra Ölgerðarinnar í tilkynningu.
Þar kemur fram að Jóhann Gunnar sé löggiltur endurskoðandi og viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Jóhann Gunnar, sem hefur störf á næstu vikum, tekur við starfinu af Kristjáni Elvari Guðlaugssyni sem verið hefur framkvæmdastjóri frá árinu 2006 og í eigendahópi félagsins frá 2007, en hann sagði starfi sínu lausu fyrir stuttu.