Berta nýr framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans

Berta hefur gegnt ýmsum ábyrgðarstörfum fyrir Marel síðastliðin 18 ár …
Berta hefur gegnt ýmsum ábyrgðarstörfum fyrir Marel síðastliðin 18 ár og nú síðast sem rekstrarstjóri Marel í Seattle í Bandaríkjunum.

Berta Daníelsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans ehf. 
Hún hefur gegnt ýmsum ábyrgðarstörfum fyrir Marel síðastliðin 18 ár og nú síðast sem rekstrarstjóri Marel í Seattle í Bandaríkjunum. Berta er með meistaragráðu í stjórnun alþjóðlegra fyrirtækja frá Háskólanum á Akureyri og ein af stofnendum félagsins Konur í sjávarútvegi.

Í fréttatilkynningu segir að Berta muni taka við starfinu 15. nóvember af Þór Sigfússyni stofnanda og eiganda Íslenska sjávarklasans. Þór mun starfa áfram að nýsköpunarverkefnum sem klasinn hefur sett á laggirnar ásamt því að vera áfram stjórnarformaður.

Berta segir að hún sé afar spennt fyrir starfinu og möguleikunum sem Íslenski sjávarklasinn hefur að bjóða samstarfsfyrirtækjum sínum og viðskiptavinum. „Það liggja mikil tækifæri í framtíðinni og krafturinn í nýsköpuninni hér á landi er heillandi, segir Berta. „Þór hefur lagt grunninn að Sjávarklasanum síðastliðinn 5 ár og hafa mörg ný fyrirtæki og verkefni hafa litið dagsins ljós sem braggast vel í dag,“ er haft eftir Bertu í tilkynningu.

„Ég starfaði hjá Marel í 18 ár sem eitt sinn var lítil hugmynd og verkefni nokkura háskólanema. Marel er leiðandi fyrirtæki í vinnslu á matvælum á heimsvísu og ég efast ekki um að á meðal samfélagsins í sjávarklasanum eru fleiri Marel að taka sín fyrstu skref. Ég hef mikla ástríðu fyrir nýsköpun og árangri og vonast til að reynsla mín frá Marel muni nýtast vel á nýjum vettvangi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK