Útlitsbreytingar hjá Samskipum

Breytingin átti sér stað 17. þessa mánaðar, en þá var …
Breytingin átti sér stað 17. þessa mánaðar, en þá var öll starfsemi Samskipa á Íslandi sameinuð undir nafni Samskipa. Þar á meðal er öll starfsemi sem áður var undir nafni og merki Landflutninga.

Endurmerkja þarf um 100 bíla og tæki hjá Samskipum eftir ákvörðun um að færa alla starfsemi félagsins undir eitt merki. Undir eru jafnframt ótal breytingar aðrar, svo sem á húsnæði, pappírum og kynningarefni, en vinnufatnaði verður þó ekki skipt út fyrr en kemur að endurnýjun vegna slits.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samskipum. 

„Við viljum einfalda skilaboð okkar til markaðarins um það flutninganet og þjónustu sem Samskip hafa upp á að bjóða,“ er haft eftir Pálmari Óla Magnússyni, forstjóra Samskipa, í fréttatilkynningu. Hann bendir á að undanfarin þrjú ár hafi Samskip boðið upp á beinar áætlanasiglingar af ströndinni og sigli nú til átta viðkomuhafna vítt og breitt um landið. „Þessi áhersla á strandsiglingar ásamt þéttriðnu þjónustuneti okkar innanlands gerir okkur nú kleift að bjóða aukna þjónustu á landsbyggðinni.“

Breytingin átti sér stað 17. þessa mánaðar, en þá var öll starfsemi Samskipa á Íslandi sameinuð undir nafni Samskipa. Þar á meðal er öll starfsemi sem áður var undir nafni og merki Landflutninga.

„Með þessum breytingum viljum við endurspegla það heildstæða þjónustuframboð sem fyrirtækið hefur upp á að bjóða og þá liðsheild sem býr innan fyrirtækisins. Samskip eru samhentur hópur starfsmanna sem leggur sig fram um að veita viðskiptavinum fyrirtækisins persónulega og framúrskarandi þjónustu. Við erum samhent lið undir einu merki, merki Samskipa,“ segir Pálmar Óli.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK