3% atvinnuleysi á Íslandi

Hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3% á Íslandi í september, samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands.

Samanburður mælinga fyrir september 2015 og 2016 sýnir að atvinnuþátttakan jókst um 0,9 prósentustig á milli ára. Fjöldi starfandi jókst um 8.500 og hlutfallið af mannfjölda hækkaði um 1,6 stig. Atvinnulausum fækkaði um 1.300 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu lækkaði um 0,8 prósentustig.

Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 198.300 í september 2016, sem jafngildir 84,1% atvinnuþátttöku, sem er sama hlutfall og í ágúst. Fjöldi atvinnulausra í ágúst var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 6.400, sem er aukning um 200 manns frá því í ágúst. Hlutfall atvinnulausra jókst lítillega á milli ágúst og september, eða úr 3,1% í 3,2%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í september 2016 var 81,4%, sem er nánast sama hlutfall og í ágúst. Þegar horft er til síðustu sex mánaða sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuleysi stendur nánast í stað, en á síðustu tólf mánuðum hefur það lækkað um 0,7 prósentustig. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur aftur á móti aukist um 0,7 stig og um 1,6 stig síðustu tólf mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK