Í gær undirrituðu Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands tvo samninga sem báðir miða að stuðningi við nýsköpun og sprotafyrirtæki.
Greint er frá þessu á vef atvinnuvegaráðuneytisins. Þar segir að samningarnir eigi báðir rætur í aðgerðaráætluninni Frumkvæði og framfarir sem iðnaðar og viðskiptaráðherra kynnti í desember 2015. Áætlunin byggir á 22 aðgerðum sem miða að því að starfsumhverfi fyrir frumkvöðla, sprotafyrirtæki og nýsköpunarstarf á Íslandi standist allan alþjóðlegan samanburð.
Samningarnir eru annars vegar vegna nýsköpunarátaks í starfandi fyrirtækjum þar sem ráðist verður í sérstakt átak meðal starfandi fyrirtækja sem byggir á fræðslu og markvissri greiningu á tækifærum til nýsköpunar og þróunar.
Hins vegar er um að ræða samning um stuðning og þjálfun við alþjóðlega sókn framúrskarandi sprotafyrirtækja í vexti. Verkefnið verður unnið í samstafi við norræna samstarfsaðila þar sem framúrskarandi fyrirtækjum verður boðin þátttaka í svokölluðum hraðalsverkefnum erlendis.