Leggja niður ferðir milli London og Egilsstaða

Flugvöllurinn á Egilsstöðum.
Flugvöllurinn á Egilsstöðum. mbl.is/Sigurður Aðalsteinson

Viðtökurnar á beinu flugi milli London Gatwick-flugvallar og Egilsstaða í sumar voru mun minni en búist var við. Sætanýtingin var því ekki nægjanleg til að standa undir kostnaði en það var breska ferðaskrifstofan Discover the World sem átti frumkvæðið að þessu flugi. Discovery the World hefur í áratugi verið í fararbroddi skipulagningu Íslandsferða frá Bretlandi.

Greint er frá  þessu á vefnum Túristi.is. Þar kemur fram að í sumar hafi verið boðið  upp á beint flug milli London-Gatwick flugvallar og Egilsstaða. Upphaflega stóð til að fljúga samtals 35 ferðir frá vori og fram á haust en flugferðunum var hins vegar fækkað niður í 9 og voru þær allar farnar yfir hásumarið.

Túristi.is ræðir við Clive Stacey, forstjóra og stofnanda Discover the World, sem segir að þeir sem hafi nýtt sér flugferðirnar í sumar hafi verið ánægðir með þjónstuna. Þó er staðreyndin sú að viðtökurnar, bæði í Bretlandi og á Íslandi, hafi verið langtum minni en búist hefði verið við. Stacey bendir jafnframt á að aukin tíðni ferða frá Bretlandi til Keflavíkurflugvallar á næsta ári og mjög samkeppnishæf fargjöld á breskum flugleiðum geri það að verkum að það yrði mjög erfitt að starfrækja viðbótarflug til Íslands. „Gengi krónunnar í samanburði við lækkandi pund gerir þetta líka mun erfiðara en ella,“ er haft eftir Stacey.

Í frétt Túrista.is kemur fram að Í fyrra hafi komið hingað um 10 þúsund Bretar á vegum Discover the World og segir Stacey að þrátt fyrir allt þá gangi sala á Íslandsferðum vel og hann búist við að svo verði áfram. „Markmið okkar er að halda áfram að vinna með félögum okkar hjá Icelandair og WOW að því að selja ferðir um Austurland og aðrar dreifðar byggðir í tengslum við flug til Keflavíkurflugvallar,“ segir Stacey.

Frétt Túrista.is í heild sinni má sjá hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK