Vilja keðjuábyrgð í lög

Samiðn vill að keðjuábyrgð verði innleidd í lög sem fyrst.
Samiðn vill að keðjuábyrgð verði innleidd í lög sem fyrst. Rax / Ragnar Axelsson

Miðstjórn Samiðnar segir það mikil vonbrigði hversu hægt gangi að innleiða keðjuábyrgð aðalverktaka og verkkaupa í tengslum við verklegar framkvæmdir hér á landi. Hvorki löggjafinn né samtök atvinnurekenda hafi sýnt vilja til að verða við þessari kröfu þrátt fyrir að mörg dæmi séu um að brotið sé á starfsmönnum erlendra undirverktaka sem starfi hér á landi. Þetta kemur fram í samþykkt miðstjórnarinnar.

Í samþykktinni er skorað á nýtt Alþingi að gera það að sínum fyrstu verkum að tryggja skýra löggjöf um keðjuábyrgð. Þá er framtaki Landsvirkjunar, Akureyrarbæjar og Reykjavíkurborg um að setja inn ákvæði um keðjuábyrgð í útboðsskilmálum sínum fagnað. Eru önnur sveitarfélög og ríki hvött til að gera það sama.

Samiðn skorar einnig á væntanlega ríkisstjórn að ná sátt við Alþingi um breytingar á lögum um opinbera lífeyrissjóði fyrir næstu áramót. Það sé forsenda fyrir samræmingu lífeyrisréttinda eins og samkomulag sé um á almenna og opinbera vinnumarkaðinum. Gangi þetta ekki eftir séu þær forsendur brostnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK