„Bandalag um óbreytt ástand“

Í búvörulögum, sem samþykkt voru á Alþingi í september, er …
Í búvörulögum, sem samþykkt voru á Alþingi í september, er kveðið á um að skipaður verði samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Mér sýnist að þarna sé verið að mynda enn eitt bandalagið um óbreytt ástand,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, um skipun samráðshóps um endurskoðun búvörusamninga. Í hópnum eiga neytendur þrjá fulltrúa, ráðuneytið fimm, Bændasamtökin þrjá og atvinnulífið einn. 

Í búvörulögum, sem samþykkt voru á Alþingi í september, er kveðið á um að skipaður verði samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga. Í lögunum er jafnframt kveðið á um að tryggja skuli aðkomu afurðastöðva, atvinnulífs, bænda, launþega og neytenda að endurskoðuninni og að vinnu hópsins skuli lokið eigi síðar en í árslok 2018.

Í fyrstu áttu sjö manns að sitja í samráðshópnum. Félag atvinnurekenda gagnrýndi þá þegar harðlega að ekki hefði verið óskað eftir tilnefningu frá því í hópinn. Þótti félaginu það skjóta skökku við þar sem það hefði verið leiðandi í umræðu um aukið frelsi í landbúnaði.

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.

 Síðan gerðist það að ASÍ og BSRB neituðu að skipa fulltrúa í hópinn nema að hvor samtökin fyrir sig fengju sinn fulltrúa.

Gunnar Bragi Sveinsson, landbúnaðarráðherra, varð við þessum kröfum og fá samtökin nú hvorn sinn fulltrúann í samráðshópnum sem loks var skipaður í gær, mánuði síðar en lögin gerðu ráð fyrir.

En í hópnum sem nú hefur verið skipaður sitja tólf fulltrúar, þar af fimm sem skipaðir eru af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti. Þá er fulltrúum Bændasamtakanna einnig fjölgað. „Þetta er að mínu viti gert til að halda valdajafnvæginu, svo að þeir sem gerðu hina alræmdu búvörusamninga hafi meirihluta í hópnum,“ segir Ólafur.

Niðurstaðan er því sú að neytendur eiga þrjá fulltrúa, ráðuneytið fimm, Bændasamtökin þrjá og atvinnulífið einn.

„Við teljum þetta nú ekki fallið til þess að ýta undir þetta þjóðarsamtal sem formaður atvinnuveganefndar boðaði,“ segir Ólafur. „Mér sýnist að þarna sé verið að mynda enn eitt bandalagið um óbreytt ástand.

Hverjir sitja í samráðshópnum?

Í samráðshópnum eiga sæti:  

  • Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir formaður, skipuð af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
  • Róbert Farestveit, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
  • Helga Jónsdóttir, tilnefnd af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
  • Sindri Sigurgeirsson, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands
  • Björgvin Jón Bjarnason, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands
  • Elín Heiða Valsdóttir, tilnefnd af Bændasamtökum Íslands
  • Ólafur Arnarson, tilnefndur af Neytendasamtökunum
  • Andrés Magnússon, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
  • Elín Margrét Stefánsdóttir, skipuð af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
  • Jóna Björg Hlöðversdóttir, skipuð af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
  • Björg Bjarnadóttir, skipuð af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
  • Ögmundur Jónasson, skipaður af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK