Fleiri vildu hlut í Skeljungi en fengu

Almennu útboði á hlutabréfum í Skeljungi hf. lauk í gær og óskuðu um 2.500 fjárfestar eftir kaupum á hlutabréfi í félaginu fyrir samtals yfir 12 milljarða króna. Umframeftirspurn varð á útboðinu en niðurstaða seljanda er að úthluta um 2.000 fjárfestum samtals 31,5% hlut á genginu 6,9 krónur á hlut. Söluandvirði útboðsins nemur því um 4,6 milljörðum króna og reiknast markaðsvirði alls hlutafjár í Skeljungi um 14,5 milljarðar króna miðað við niðurstöðu útboðsins.

Skelj­ung­ur birti skrán­ing­ar­lýs­ingu fyr­ir fé­lagið 15. nóvember. Er þetta eina nýja félagið sem verður skráð í Kauphöllina á þessu ári.  

Fyrri frétt mbl.is: Virkilega góð viðbót við markaðinn

Í fréttatilkynningu segir að í ljósi mikillar eftirspurnar ákváðu Arion banki hf. og SÍA II slhf. að fullnýta heimild sína til að stækka útboðið. SF IV slhf. selur í útboðinu 23,5% hlut í Skeljungi hf., Arion banki 4% og SÍA II 4%.

Fyrir liggur að 11,75% hlutur verður seldur til fjárfesta í tilboðsbók A, þar sem mögulegt verðbil var 6,1-6,9 kr./hlut og 19,75% hlutur seldur til fjárfesta í tilboðsbók B, þar sem lágmarksgengi var 6,1. Fjárfestar í tilboðsbók A fá úthlutað ríflega helming þess sem þeir óskuðu eftir að kaupa, nema áskriftir verða ekki skertar undir 500 þúsund krónur. Áskriftir sem bárust á verði yfir 6,9 krónur á hlut í tilboðsbók B verða óskertar en úthlutun til fjárfesta með áskriftir á útboðsgenginu nemur um fjórðungi af áskrift.

Áætla að hefja viðskipti 9. desember

Í tilkynningunni segir að fjárfestum verði sendar upplýsingar um úthlutun ásamt greiðslufyrirmælum eftir að Nasdaq Iceland hefur staðfest að hlutir í Skeljungi hf. verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Gert er ráð fyrir að eindagi greiðsluseðla vegna útboðsins verði 7. desember. Fjárfestingarbankasvið Arion banka hefur umsjón með útboðinu og fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur umsjón með fyrirhugaðri skráningu félagsins í Kauphöllina. Áætlað er að föstudaginn 9. desember geti viðskipti hafist með hluti í Skeljungi á Aðalmarkaði.

  „Það er afar ánægjulegt að sjá þessa góðu niðurstöðu í útboðinu. Hún tryggir leið Skeljungs aftur inn á hlutabréfamarkað eftir að hafa starfað sem óskráð félag í ríflega áratug. Þessi áfangi er mikilvægt skref fyrir fyrirtækið, starfsfólk, hluthafa og viðskiptavini. Við hjá Skeljungi hlökkum til að takast á við framtíðina í skráðu félagi og bjóðum nýja hluthafa hjartanlega velkomna í hópinn,“ er haft eftir Valgeiri M. Baldurssyni, forstjóra Skeljungs í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK