Mun betri afkoma en búist var við

Ráðhús Reykjavíkur.
Ráðhús Reykjavíkur. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar var jákvæð um 1.042 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 67 milljónir króna á tímabilinu. Niðurstaðan er því 975 milljónum betri en gert var ráð fyrir.

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, var jákvæð um 17,5 milljarða en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 8,46 milljarða króna.  Rekstrarniðurstaðan er því rúmum níu milljörðum betri en gert var ráð fyrir.

Skýrist af lægri rekstrarkostnaði

Betri rekstrarniðurstaða skýrist að stærstum hluta af lægri rekstrarkostnaði, sem var 889 milljónum lægri en áætlun gerði ráð fyrir og meiri þjónustutekjum sem skiluðu 408 milljónum umfram áætlun á fyrstu níu mánuðum ársins.  Á móti hækkuðu lífeyrisskuldbindingar 749 milljónir umfram áætlun á tímabilinu.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 1.612 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 1.034 milljónir króna eða 578 milljónum króna betri en áætlun gerði ráð fyrir.

„Helstu ástæður fyrir betri afkomu má rekja annars vegar til hærri tekjufærðra matsbreytinga fjárfestingaeigna Félagsbústaða hf. og hins vegar lægri fjármagnsgjalda samstæðunnar vegna hagstæðrar gengisþróunar, gangvirðisbreytinga innbyggðra afleiða í raforkusamningum hjá Orkuveitu og lægri verðbólgu en áætlun gerði ráð fyrir,“ segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 14, 6 milljarða króna sem er 716 milljónum betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.

Eiginfjárhlutfall fer hækkandi

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok tímabils 528,3 milljörðum króna,  heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 292,2 milljarðar króna og eigið fé var 236,2 milljarðar króna en þar af var hlutdeild meðeigenda 13.166 milljónir króna.  Eiginfjárhlutfall samstæðunnar fer hækkandi og er nú 44,7% en var 42,9% um síðustu áramót.

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Í tilkynningu borgarinnar kemur fram að til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð.

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru:  Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK