Selja hlut sinn í Epli

Epli selur vörur frá Apple.
Epli selur vörur frá Apple. AFP

Bjarni Ákason og Valdimar Grímsson hafa selt Guðna Eiríkssyni meirihluta sinn í Skakkiturn ehf. sem rekur verslunina Epli sem selur vörur frá tæknirisanum Apple. Þeir munu þó áfram eiga hlut í fyrirtækinu, og mun Bjarni starfa þar áfram og sitja í stjórn þess.

,,Þessi niðurstaða er góð að okkar mati og við treystum nýjum meirihlutaeiganda til að gera góða hluti. Áhersla var lögð á að gera sem minnstar breytingar enda hafa starfsmenn fyrirtækisins staðið sig afar vel í gegnum tíðina,“ er haft eftir Bjarna í fréttatilkynningu. „Apple er með mestu markaðshlutdeild á fjölda markaða eins og í einstaklingstölvum og menntageiranum. Þá er það einnig ráðandi á sjónvarpsmarkaðnum með Apple TV," er haft eftir Bjarna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK