Mesti afgangur frá upphafi mælinga

Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum námu erlendar eignir þjóðarbúsins 4,040 milljörðum …
Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum námu erlendar eignir þjóðarbúsins 4,040 milljörðum króna í lok ársfjórðungsins en skuldir 3,980 milljörðum króna. mbl.is/Ómar Óskarsson

Viðskiptajöfnuður mældist hagstæður um 100,4 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi ársins samanborið við 32,5 milljarða fjórðunginn á undan. Þetta er mesti afgangur af viðskiptajöfnuði frá upphafi mælinga og í fyrsta sinn sem hann fer yfir 100 milljarða á fjórðungi. Vöruskiptajöfnuður var óhagstæður sem nam 22,5 milljörðum króna en þjónustujöfnuður mældist hagstæður um 121,6 milljarða.  Jöfnuður frumþáttatekna var hagstæður um 6,1 milljarð króna en rekstrarframlög óhagstæð um 4,8 milljarð króna. 

Þetta kemur fram á vef Seðlabanka Íslands en þar hafa nú verið birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á þriðja ársfjórðungi 2016 og stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Krónan hækkaði mest gagnvart sterlingspundi

Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 4,040 milljörðum króna í lok ársfjórðungsins en skuldir 3,980 milljörðum króna. Hrein staða við útlönd var því jákvæð um 60 milljarða króna eða sem nam 2,6% af vergri landsframleiðslu. Erlend staða þjóðarbúsins er jákvæð í fyrsta sinn frá því að mælingar hófust.

Nettóskuldir lækkuðu um 30 milljarða króna en hrein fjármagnsviðskipti leiddu til um 129 milljarða krónu bættrar erlendrar stöðu þjóðarbúsins. Þar af hækkuðu erlendar eignir um 140 milljarða króna en skuldir um 11 milljarða króna vegna fjármagnsviðskiptanna. Gengis- og verðbreytingar höfðu neikvæð áhrif á erlenda stöðu þjóðarbúsins um 83 milljarða króna á ársfjórðungnum. Gengi krónunnar hækkaði gagnvart helstu gjaldmiðlum eða að jafnaði um 6,7% miðað við  gengisskráningarvog. Mest hækkaði gengi krónunnar gagnvart sterlingspundi eða um 10,1%. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK