Þrjár vörur með allar pakkningar yfir uppgefinni þyngd

Samkvæmt reglum um þyngd á forpökkuðum vörum mega pökkunaraðilar hafa …
Samkvæmt reglum um þyngd á forpökkuðum vörum mega pökkunaraðilar hafa innihald þyngra en uppgefið er þannig að neytendur njóti góðs af en þeir mega ekki hlunnfara neytendur. mbl.is/Hjörtur

Þrjár vörur voru með allar pakkningar yfir uppgefinni þyngd í síðustu skoðun Neytendastofu á forpökkuðum vörum. Tvær vörur stóðust ekki viðmið, þ.e. Íslenskir kirsuberjatómatar frá Birkiflöt og óhrært skyr, 500 gr. frá Örnu ehf.

Vörurnar sem voru með pakkningar yfir uppgefinni þyngd voru KEA vanillu skyr, 500 gr., Skyr.is hreint 500 gr. frá MS, hrein Grísk jógúrt 200 gr. frá Örnu og Grísk haustjógúrt 230 gr. frá sama fyrirtæki. Í þeim pakkningum voru 27 af 30 yfir uppgefinni þyngd. Meðalþyngd mældist með tæplega 10% yfirþyngd.

Samkvæmt reglum um þyngd á forpökkuðum vörum mega pökkunaraðilar hafa innihald þyngra en uppgefið er þannig að neytendur njóti góðs af en þeir mega ekki hlunnfara neytendur.

Á vef Neytendastofu kemur fram að stofnunin fari reglulega og skoði forpakkaðar vörur í verslunum eða hjá pökkunaraðilum. Skoðað er hvort þyngd vörunnar sé í samræmi við uppgefna þyngd á umbúðum. Unnið er samkvæmt ákveðnu verklagi þar sem skoðuð er þyngd hverrar vöru og eins meðalþyngd úrtaksins.

Í síðustu skoðun voru skoðaðar 19 vörutegundir og reyndust tvær ekki standast viðmiðunarmörk eins og fyrr segir. Skoðaðar voru eftirfarandi vörur: forpökkuð kjötsúpa, kjötfars, þrjár tegundir af ostum, rjómasúkkulaði, kjúklingaréttur, fjórar tegundir af skyri, sýrður rjómi frá tveimur framleiðendum, tómatar frá fjórum framleiðendum og tvær tegundir af jógúrt. Framleiðendur á þessum vörum eru: Hollt og gott, Krónan, Kú-mjólkurbúið, MS, Ostahúsið, Nói Síríus, 1944, Sölufélag garðyrkjumanna, Arna og Mjólka.

Forpakkaðar vörur eru ekki vigtaðar fyrir framan neytendur og þeir þurfa að treysta á að uppgefin þyngd sé rétt. Ábyrgð á vigt vöru er hjá framleiðendum en þeim ber að tryggja að varan sé vegin á löggiltri vog og raunverulegt magn sé í samræmi við merkingar á umbúðum,“ segir á vef Neytendastofu.

„Ef of margar pakkningar eða meðaltalsþyngd er undir viðmiðunarmörkum er haft samband við framleiðanda og farið fram á lagfæringu á vigtun vörunnar og því síðan fylgt eftir með skoðun.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK