Aldrei meiri sætanýting í nóvember

Framboðsaukning nam 23% og sætanýting var 79% samanborið við 78,3% …
Framboðsaukning nam 23% og sætanýting var 79% samanborið við 78,3% í sama mánuði í fyrra. mbl.is/Árni Sæberg

Í nóvember flutti Icelandair 231 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 20% fleiri en á síðasta ári. Framboðsaukning nam 23% og sætanýting var 79% samanborið við 78,3% í sama mánuði í fyrra.

Í tilkynningu Icelandair kemur fram að sætanýtingin hafi aldrei verið hærri í nóvember. Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru tæplega 23 þúsund í nóvember og fjölgaði um 2% á milli ára. Sætanýting nam 67,2% og lækkaði um 7,4 prósentustig á milli ára.

Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 1% á milli ára.  Fraktflutningar jukust um 4% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 76,5% samanborið við 70,6% í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK