Ekki meiri aukning síðan 2007

Aukningin nú skýrist að verulegu leyti af framlagi utanríkisviðskipta en …
Aukningin nú skýrist að verulegu leyti af framlagi utanríkisviðskipta en útflutningur jókst að raungildi um 16,4% samanborið við sama tímabil árið 2015. mbl.is/Rax

Landsframleiðslan á þriðja fjórðungi ársins jókst að raungildi um 10,2% frá sama ársfjórðungi fyrra árs. Er þetta mesta aukning sem mælst hefur frá því á fjórða ársfjórðungi 2007.

Greint er frá þessu á vef Hagstofunnar. Þar kemur fram að aukningin nú skýrist að verulegu leyti af framlagi utanríkisviðskipta en útflutningur jókst að raungildi um 16,4% samanborið við sama tímabil árið 2015. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst að raungildi um 4,7% frá 2. ársfjórðungi 2016.

Á fyrstu níu mánuðum ársins jókst landsframleiðslan um 6,2% að raungildi borið saman við fyrstu níu mánuði síðasta árs. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 9,3%. Einkaneysla jókst um 6,7%, samneysla um 1,1% og fjárfesting um 27,4%. Útflutningur jókst um 10% og innflutningur nokkru meira, eða um 16,6%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK