Félag atvinnurekenda segir það mikil vonbrigði fyrir atvinnulífið að í fjárlagafrumvarpi næsta árs sé ekki gert ráð fyrir neinum breytingum á tryggingagjaldinu sem leggst á fyrirtæki.
Á vef FA er bent á að á síðasta kjörtímabili hafi tryggingagjaldið verið lækkað um 0,84 prósentustig. Það er þó áfram mjög langt frá því að vera komið í sama horf og fyrir hrun en þá var tryggingagjaldið 5,34% af launakostnaði árið 2007. Hæst varð gjaldið 8,65% árið 2010.
„Skatturinn stendur nú í 6,85% og ekki er gert ráð fyrir neinni lækkun á næsta ári. Enn vantar því 1,5 prósentustig upp á að skatturinn verði jafnhár og hann var fyrir árið 2008,“ segir á vef FA.
Þar bendir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, á að tryggingagjaldið hafi verið hækkað til að standa undir stórauknum útgjöldum vegna atvinnuleysis eftir hrunið. Með batnandi hag og aukinni atvinnu hafi æ stærri hluti tryggingagjalds farið til að fjármagna önnur útgjöld ríkissjóðs. „Eftir ítrekuð fyrirheit á síðasta kjörtímabili um lækkun tryggingagjalds er niðurstaðan vonbrigði. Þessi skattheimta leggst þungt á minni og meðalstór fyrirtæki og dregur úr samkeppnisfærni þeirra. Við skorum á Alþingi að gera breytingar á fjárlagafrumvarpinu og lækka tryggingagjaldið,“ er haft eftir Ólafi.