1.092 milljarðar í laun í fyrra

Álagning á lögaðila á Íslandi vegna ársins 2015 sýnir að …
Álagning á lögaðila á Íslandi vegna ársins 2015 sýnir að efnahagur landsins er í miklum blóma mbl.is/Golli

„Niðurstöður álagningar bera með sér að efnahagur landsins er á uppleið, fyrirtækjum fjölgar, hagnaður eykst og laun hækka.“ Þetta segir Páll Kolbeins, rekstrarhagfræðingur hjá Ríkisskattstjóra, í grein í Tíund, blaði embættisins, sem er nýkomið út.

Í greininni fjallar Páll um niðurstöður álagningar opinberra gjalda á lögaðila vegna rekstrar ársins 2015. Lögaðili er samheiti yfir félög sem eru í atvinnurekstri, oftast hlutafélag eða einkahlutafélag. Þá geta stofnanir verið lögaðilar en eru ekki skattskyldar í tekjuskatti.

Árið 2015 greiddu fyrirtæki og stofnanir 1.092 milljarða í laun, lífeyri og launatengd gjöld. Þetta var 85 milljörðum eða 8,4% meira en þau greiddu árið áður.

Fjármálafyrirtæki greiða minna

Skilafrestur framtala var í maí, lagt var á um miðjan október og í kjölfarið voru álagningarseðlar sendir út. Páll segir að þótt að framtöl séu enn að berast og álagningin eigi því eftir að taka nokkrum breytingum þegar lengra líður frá skilafresti beri niðurstöður hennar engu að síður með sér að rekstrarskilyrði og atvinnuhorfur hafi farið batnandi árið 2015. Skattskyldur hagnaður jókst um 7,4% að raunvirði og tryggingagjaldsstofn hækkaði um 8,4%. Alls voru nú lagðir rúmir 172 milljarðar á fyrirtæki og stofnanir í opinber gjöld, sem er rúmum 15 milljörðum minna en í fyrra. „Hér skiptir sköpum að sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, sem er skattur á skuldir fjármálafyrirtækja, lækkaði um 25,6 milljarða frá því í fyrra,“ segir Páll. Nú voru 57.212 lögaðilar á skattgrunnskrá, 1.557 fleiri en fyrir ári. Lögaðilum á skrá fjölgaði um 2,8% á milli ára, sem er heldur meiri fjölgun en á milli áranna 2014 og 2015, en þá fjölgaði um 1.277, eða 2,3%.

Nú voru 41.045 þeirra 57.512 lögaðila sem voru á skrá tekjuskattsskyld fyrirtæki en 16.467 voru aðrir lögaðilar, opinberir aðilar, sveitarfélög, stofnanir og félaga- og líknarsamtök sem eru ekki rekin í ágóðaskyni.

Páll Kolbeins.
Páll Kolbeins.

Þrátt fyrir að lögaðilar fái lengri frest en einstaklingar til að gera upp rekstur ársins og ganga frá skattframtalinu skila mörg fyrirtæki framtali seint, eftir að skilafresti og álagningu er lokið. Sum skila ekki neinu. Ríkisskattstjóri áætlaði tekjur og skatta 11.051 fyrirtækis, eða um 19,2% lögaðila á skattgrunnskrá. Skattar og gjöld eru yfirleitt ekki áætluð nema á fyrirtæki sem rekin eru í hagnaðarskyni og því má segja að skattar 26,9% tekjuskattsskyldra fyrirtækja, eða ríflega fjórðungs, hafi verið áætlaðir. Þetta hlutfall hefur þó farið heldur lækkandi á undanförnum árum, en árið 2009 voru skattar 33,9% fyrirtækja áætlaðir. Árið 2010 var þetta hlutfall 35,1% og það var 28,9% í álagningu árið 2015.

Skattskyldur hagnaður fyrirtækja var rúmir 296 milljarðar árið 2015, skv. skattframtölum ársins 2016. Hann hafði þá aukist um rúma 26 milljarða, eða 9,8% að raunvirði frá árinu áður. Til viðbótar áætlaði ríkisskattstjóri félögum rúma 38 milljarða í tekjur, sem var rúmum þremur milljörðum minna en í fyrra.

Nú voru lagðir tæpir 70 milljarðar á félög í tekjuskatt af hagnaði, sem var tæpum fimm milljörðum meira en fyrir ári, að því er fram kemur í grein Páls. Rúmur 61 milljarður var lagður á tekjur skv. skattframtali en rúmir átta milljarðar til viðbótar voru lagðir á áætlaðar tekjur.

Tekjuskattur lögaðila er flatur 20% skattur sem er lagður á hagnað hlutafélaga en sameignar- og samlagsfélög, þrota- og dánarbú greiða 36% skatt. Skatturinn hefur verið óbreyttur síðan í álagningu 2012 en þá hafði hann hækkað úr 15% í álagningunni 2010 og 18% í álagningu 2011. Tekjur af tekjuskatti lögaðila hafa ekki verið hærri síðan í álagningu árið 2008, en þá voru 73 milljarðar lagðir á félög.

Munurinn er þó sá að árið 2008 var rúmur 31 milljarður af þeim 73 sem voru lagðir á byggður á áætlunum en rúmlega átta milljarðar núna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK